Fyrirkomulag snjómoksturs í Hesti 2020-2021.
Umsjónaraðili snjóruðnings í vetur er Baldur Sigurjónsson. Tengiliður okkar við Baldur verður Edda í Brekkukoti ( s. 896-1240). Stefnt er að því að halda opnu um helgar og að snjóruðningur fari fram á föstudögum og sunnudögum þegar þörf er. Þá verður Skjólhólavegur ruddur, brekkan og inn götu eins og venja hefur verið. Áætlað er að búið verði að ryðja um hádegi þá daga sem rutt er.
Hafa má samband við Baldur, sími: 8921290,ef fólk vill láta ryðja heimkeyrslu til sín. Fólki er bent á að ræða áætlaðan kostnað við Baldur en vinna við það er háð snjómagni.

ATHUGIÐ! - Golfmóti frestað

Golfmóti Hestlendinga sem átti að vera næstkomandi sunnudag verður frestað um eina viku vegna veðurs. Við höfum fengið rástíma frá kl. 13:00 sunnudaginn 6 sept.
Vonandi verður þáttaka ekki síðri þá, en vinsamlegast staðfestið þátttöku á þessum nýja tíma.
Bestu kveðjur, stjórnin. This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. og This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

ATHUGIÐ! - Golfmót, breytt dagsetning

Þar sem veðurspáin gefur til kynna rok og rigningu n.k. sunnudag, þá höfum við ákveðið að færa golfmótið fram um tvo daga, þ.e. næstkomandi föstudag, fyrsta holl út kl. 12:00, síðasta út kl.13:30, sjá nýja auglýsingu. Við viljum biðja ykkur sem hafið áhuga á að koma á mótið að skrá sig sem allra fyrst, í síðasta lagi fyrir hádegi á morgun fimmtudag. Vonum að sem flestir sjái sér fært að koma. Fullt af fínum vinningum.

Golfmót Hestlendinga
Sunnudaginn 30.ágúst 2020 kl 13:00

Fyrirkomulag
Hjóna- og parakeppni – Texas scramble

Leikið verður Texas scramle-punktakeppni með forgjöf þar sem hvert par velur betri bolta eftir hvert högg og báðir einstaklingar slá næsta högg þaðan. Endurtekið þar til kúlan er í holu.
Þáttökukjald er 2000 kr - 4000 kr á par, einungis tekið á móti seðlum.
Ef Hestlendingur er ekki meðlimur í Golfklúbbi Kiðjabergs þá þarf hann einnig að greiða vallargjald.
Því miður fékkst ekki leyfi fyrir því að ræst verði út samtímis, fyrsta holl fer því út kl 13 og síðan á 10 mínútna fresti eftir það. Gert er ráð fyrir að þeir síðustu komi í hús um kl 18.30.

Verðlaunaafhending í golfskálanum er að móti loknu, verðlaun verða veitt fyrir 1., 2. og 3ja sæti, einnig nándarverðlaun á öllum par 3 brautum og fyrir lengsta drive á 4. braut.
Kvöldverður að lokinni verðlaunaafhendingu hefst kl 19. Í boði er Nautalund með bernaise og tilheyrandi, verð 4700 kr, gert upp við Rakel.

Þátttaka í golfmótið og óskir um hverjir vilji vera saman í holli tilkynnist sem fyrst þar sem fjöldi rástíma sem okkur var úthlutað er takmarkaður. Nauðsynlegt er að aðildarnúmer fylgi með. Einnig þarf að tiltaka hvort þátttakandi verði með í matnum, en það er að sjáfssögðu valfrjálst.

Við munum leitast við að halda 2ja metra reglunni og lágmarka snertingu og biðjum þátttakendur um slíkt hið sama. Skorkort og teiggjafir tekur hver og einn af borði í golfskálanum, einnig munu vinningshafar nálgast vinninga sína sjálfir af „verðlaunaborðinu“.
Vonumst eftir að sjá sem flesta.

This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. (Ingibjörg s. 892-0213)
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. (Birgir s. 840-0066)

Verðlaun í mótið eru þegin með þökkum !

Stjórn GHE